Um okkur

1881 er góðgerðafélag sem vill stuðla að auknu jafnrétti og jöfnum tækifærum fólks, óháð fjárhag og félagslegum bakgrunni. Við söfnum fé og styðjum verkefni sem ríma við stefnu 1881, þar sem draumurinn um jöfn tækifæri barna og fjölbreytni í samfélaginu er í aðalhlutverki. Félagið er óhagnaðardrifið og öllum ágóða af fjáröflunarverkefnum er úthlutað til einstaklinga eða hópa, í samræmi við stefnu og markmið 1881.Nafn félagsins vísar til byggingarárs Alþingishússins við Austurvöll, þar sem leikreglur samfélagsins eru mótaðar. Með nafngiftinni viljum við minna á mikilvægi lýðræðisins, stuðla að jákvæðum viðhorfum í garð Alþingis og veita því jákvætt aðhald og hvatningu. Í okkar huga er samhverfan í byggingarári þinghússins táknræn, þar sem tveir síðari stafirnir spegla þá fyrri og skapa táknrænt jafnvægi. Með stofnun 1881 viljum við leggja okkar lóð á vogarskálar, við þróun samfélags fyrir alla.Að félaginu stendur breiður hópur bakhjarla, fyrirtækja og einstaklinga, sem leggja félaginu til fjármagn, þjónustu og sérþekkingu. 1881 er vettvangur fyrir fólk sem vill gefa af sér.

Sagan okkar

Félagið var stofnað af Svanhildi Nönnu Vigfúsdóttur, Jóni Gunnari Geirdal, Hálfdáni Steinþórssyni og Helgu Ólafsdóttur.  Leiðir fjórmenninganna lágu saman á Vinnustofu Kjarvals vorið 2020, þegar heimsfaraldur vegna kórónuveiru hafði nánast lamað samfélagið. Gegnt okkur við Austurvöll blöstu við Dómkirkjan og Alþingishúsið og upp spratt umræða um hlutverk þingsins, réttindabaráttu okkar sem þjóðar og hvort við gætum sinnt betur okkar samfélagslegu skyldum. Úr varð stofnun góðgerðafélags, sem hefur það hlutverk að styðja og hvetja til góðra verka, jafnari tækifæra og velferð jaðarsettra hópa. Við trúum staðfastlega á styrk heildarinnar og að samfélög séu sterkari þegar hæfileikar allra eru nýttir.

Starfsfólk

Framkvæmdastjóri 1881

Katrín Sigríður Þorsteinsd. Bachmann

Stjórn

Vinnustofa Kjarval

Hálfdan Steinþórsson

Hugmyndasmiður

Jón Gunnar Geirdal

Fjárfestir

Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir